Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íslandsmet hjá ÍRB og HM lágmark hjá Kristófer

20.11.2016

Nú rétt í þessu lauk Íslandsmeistaramótinu í 25m laug. Mörg flott sund hafa verið synt hér í Ásvallalaug um helgina og góður árangur náðst.

A-sveit ÍRB setti Íslandsmet í 4x100m fjórsundi karla þegar þeir Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Árni Már Árnason, Þröstur Bjarnason og Kristófer Sigurðsson syntu á 3:43,22 og bættu ársgamalt met SH um 1,78 sekúndu. 

Þetta var góður eftirmiðdagur hjá Kristófer þar sem hann náði lágmarki á HM25 í Windsor í Kanada. Í 100m skriðsundi synti hann á 50,00 sek sem gæti ekki verið nær lágmarkinu, sem er 50,00 sek! 

Til baka