Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anton Sveinn úr S.f Ægi hefur hafið keppni á Ólympíuleikunum í Ríó.

06.08.2016

Anton Sveinn Mckee sundmaður úr sundfélaginu Ægi í Reykjavík  hóf nú fyrstur Íslendinga keppni á Ólympíuleikunum í Ríó. Hann synti nú rétt í þessu 100m bringusund á tímanum  1.01.84.  

Anton Sveinn náði ekki inn í undanúrslit endaði í 35 sæti af 46 keppendum. 

Til að komast í undanúrslit þurfti að synda á tímanum 1.00.13


Íslandsmet hans í greininni er 1.00.53 sem hann setti í Kazan í ágúst 2015. 
Anton Sveinn syndir 200m bringusund á þriðjudaginn 9.ágúst.

Til baka