Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þýðingarmikið skref í fjármögnun afreksíþrótta á Íslandi

28.07.2016

Mjög stórt og þýðingarmikið skref var tekið í dag þegar undirritaður var samningur milli Mennt- og menningamálaráðuneytisins og ÍSÍ um fjármögnun Afrekssjóðs ÍSÍ til næstu þriggja ára.  Jafnframt voru undirritaðir þrír aðrir samningar um hækkun á framlögum til reksturs sérsambanda ÍSÍ, til reksturs ÍSÍ og Ferðasjóðs ÍSÍ.  Allt eru þetta þýðingarmiklir samningar, eins og menntamálaráðherra Illugi Gunnarsson, komst að orði, en samningurinn um Afrekssjóð er stærstur og breytir mestu fyrir afreksíþróttir á Íslandi.

Athöfnin fór fram í garðinum bak við hús ÍSÍ, sérsamböndin höfðu með stuttum fyrirvara kallað til íþróttafólk til að vera viðstatt hana, en Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra undirrituðu samninginn fyrir hönd ríkisins og Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ fyrir hönd ÍSÍ. Þá var forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, viðstaddur og vottaði samninginn ásamt Líneyju Rut Halldórsdóttur framkvæmdastjóra ÍSÍ.

Fréttatilkynning ÍSÍ um málið

"Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Íþrótta og Ólympíusamband Íslands undirrituðu í dag tímamótasamning til næstu þriggja ára um stóraukið fjárframlag ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi. Framlagið mun hækka í áföngum úr 100 milljónum á fjárlögum síðasta árs í 400 milljónir á næstu þremur árum og er því um fjórföldun að ræða.

„Þetta verður algjör bylting fyrir okkur hjá ÍSÍ sem höfum haft úr allt of litlu að spila til að aðstoða sérsambönd ÍSÍ og þá afreksfólkið til að það geti helgað sig íþrótt sinni og náð sem bestum árangri,“ segir Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ um samninginn. „Margt afreksfólk hefur búið við það að meiri tími hefur farið í að fjármagna ferðir, þjálfarakostnað og uppihald heldur en að æfa og undirbúa sig fyrir keppnir. Við höfum eingöngu getað hjálpað þeim sem hafa náð miklum árangi, en umtalsverður kostnaður fylgir því að ferðast og keppa til að tryggja sér þátttökurétt á t.d. Ólympíuleikunum. Sá kostnaður lendir oft á tíðum að miklu leyti á keppandanum sjálfum,“ segir Lárus. „Það er allt of algengt að íslenskt afreksíþróttafólk hætti of snemma og samkvæmt því sem við höfum kannað er það oftar en ekki vegna erfiðleika við fjármögnun eða vanlíðan vegna fjárhagsáhyggja. Vonandi mun þessi samningur koma í veg fyrir mikið brottfall af fjárhagslegum ástæðum,“ bætir hann við.

Lárus telur samninginn mjög þýðingarmikinn fyrir íþróttastarf í landinu. „Hér er um algera byltingu fyrir afreksíþróttir að ræða og við þökkum ríkisvaldinu fyrir að hafa trú á því að árangur í íþróttum skipti þjóðina máli, og að það þurfi aukið fjármagn til að hann náist. Við erum nú komin mun nær því að geta byggt upp umgjörð fyrir afreksíþróttafólkið okkar í líkingu við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar, þó við náum líklega aldrei alveg jafn góðum aðbúnaði og þær mun fjölmennari þjóðir. Þessi niðurstaða er árangur samningaviðræðna okkar til nokkurra ára og í kjölfar ítarlegrar greiningar á fjárþörf afreksíþrótta á Íslandi. Það sýndi sig þegar KSÍ náði að laga til umgjörðina sína utan um landslið sín að árangurinn kom fljótt í ljós. Við vonum að þessi auknu framlög í Afrekssjóð ÍSÍ muni gera öðrum sérsamböndum kleift að bæta umgjörðina utan um sína afreksmenn.“ „Til að fagna þessu skrefi vildum við formlega undirrita samninginn milli ÍSÍ og ríkisins í Laugardalnum í morgun. Við fengum landsliðsfólk, þjálfara og forsvarsfólk frá sérsamböndum ÍSÍ til að fjölmenna og fagna þessum tímamótasamningi. Nú er kominn tími til að við í íþróttahreyfingunni klöppum.“ segir hann að lokum."

Myndir með frétt

Til baka