Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ásdís Eva setti telpnamet í 100m bringusundi

10.07.2016

Ásdís Eva Ómarsdóttir úr Bergensvømmerne setti nú rétt í þessu telpnamet í 100m bringusundi þegar hún synti á 1:15,33 og bætti þar með tveggja ára gamalt met Karenar Mistar Arngeirsdóttur sem var 1:15,66. Gamli tími Ásdísar var 1:15,67 svo þetta er persónuleg bæting um 34/100 úr sekúndu. Tíminn skilaði henni í 7. sæti í greininni.

Til hamingju Ásdís Eva!

Til baka