Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íþróttamaður ársins 2015 í Hörpu

30.12.2015Í kvöld halda ÍSÍ og Samtök íþróttafréttamanna hóf í Hörpu þar sem Íþróttamaður ársins 2015 verður útnefndur.  Tvær sundkonur eru á topp tíu lista Samtaka íþróttafréttamanna í ár, en það eru þær Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi og Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH.  
Á hófinu í kvöld verða íþróttamenn sérsambanda innan ÍSÍ einnig heiðruð en sundfólk ársins eru þau Anton Sveinn Mckee og Eygló Ósk Gústafsdóttir.

Myndir með frétt

Til baka