Beint á efnisyfirlit síðunnar

Eygló Ósk Íþróttamaður ársins

30.12.2015

Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi var í kvöld valin Íþróttamaður ársins 2015.  Önnur sundkona, Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH varð í þriðja sæti í valinu.  Þetta er söguleg niðurstaða úr kjöri íþróttafréttamanna, en aldrei áður hafa tvær konur vermt tvö af þremur efstu sætunum í kjörinu hvað þá konur úr sömu íþróttagrein.

Endanleg röð 10 efstu í kjörinu er sem hér segir:

  1. Eygló Ósk Gúst­afs­dótt­ir (sund)              470 stig
  2. Gylfi Þór Sig­urðsson (knatt­spyrna)                350
  3. Hrafn­hild­ur Lúth­ers­dótt­ir (sund)          229
  4. Guðjón Val­ur Sig­urðsson (hand­knatt­leik­ur)  202
  5. Fann­ey Hauks­dótt­ir (kraft­lyft­ing­ar)     139
  6. Jón Arn­ór Stef­áns­son (körfuknatt­leik­ur)        137
  7. Aron Ein­ar Gunn­ars­son (knatt­spyrna)         128
  8. Sara Björk Gunn­ars­dótt­ir (knatt­spyrna)      63
  9. Aníta Hinriks­dótt­ir (frjálsíþrótt­ir)    44
  10. Helgi Sveins­son (frjálsíþrótt­ir fatlaðra)              29

Anton Sveinn Mckee sundmaður úr Ægi lenti í 19.-20. sæti í kjörinu.

Í kvöld voru einnig tekin inn í Heiðurshöll ÍSÍ þau Sigríður Sigurðardóttir og Ríkharður Jónsson, en hér er tengill á frétt visir.is um það.

Hér eru svo nokkrir tenglar á fréttir annarra fjölmiðla

Á mbl.is er þessi grein um kjör Eyglóar Óskar og svo þessi grein um árangur Hrafnhildar og einnig er hér grein með myndum frá kvöldinu.

Á visir.is birtist þessi grein um kjörið og einnig þessi grein um viðbrögð Eyglóar við kjörinu.

Á ruv.is er hér frétt um kjörið og hér er viðtal við Eygló Ósk.

Á vef ÍSÍ birtist þessi frétt um kjörið og svo er hér tengill á heimasíðu Samtaka íþróttafréttamanna

 Forsíðumyndin með þessari frétt er fengin af vef mbl.is en aðrar myndir eru ma af visir.is og vef ÍSÍ

Myndir með frétt

Til baka