Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kristinn þriðji í 200m fjórsundi

11.12.2015Krist­inn Þór­ar­ins­son, sundmaður úr Fjölni, varð í þriðja sæti í 200m fjór­sundi á Norður­landa­meist­ara­móts­ins sem haldið er í Al­ex­and­er Dale Oen Ar­ena í Ber­gen. Krist­inn synti á tím­an­um 2:02,02 sek­únd­um í úr­slita­sund­inu, en hann synti á tím­an­um á 2:01,45 sek­únd­um í undanúr­slit­um í morg­un. Besti tími Krist­ins fyr­ir mótið var 2:01,74 sek­únd­ur. Þess má geta að Ólymp­íulág­markið í þess­ari grein er 2:00,28 sek­únd­ur.
Til baka