Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bikarkeppni SSÍ í gangi

21.11.2015

Bikarkeppni SSÍ fer fram í gær og í dag.  Keppnin er liðakeppni félaga og hefur í gegnum árin verið mjög spennandi. 

Keppt er í 1. og 2. deild í kvenna- og karlaflokkum.  Í fyrstu deild eiga keppnisrétt þau 6 félög sem voru stigahæst í bikarkeppninni árið á undan og keppni í annarri deild ræðst af fjölda liða sem tilkynna sig til keppni.  Hver keppandi getur keppt í þremur greinum auk boðsundsgreina.

Í ár fer keppnin fram í Sundíþróttamiðstöðinni í Laugardal. Eins og áður segir fer fram liðakeppni og félög mega sameina krafta sína í slíkri keppni.  Í ár keppa saman UMFB og Vestri í einu liði, Breiðablik og Afturelding undir merki UMSK og Sunddeildir Ármanns, Fjölnis og KR undir merkjum Íþróttabandalags Reykjavíkur. Þá getur SSÍ  boðið félögum að senda inn svokallaðar b sveitir og í ár þáðu það boð Íþróttabandalag Reykjanesbæjar, Íþróttabandalag Reykjavíkur og Sundfélag Hafnarfjarðar.  B sveitir geta ekki unnið sig upp um deild.

Í ár boðuðu einungis 5 lið komu sína í deildina þannig að í karla- og kvennaflokkum keppa lið Sundfélag Akraness, Sundfélag Hafnarfjarðar, Íþróttabandalag Reykjanesbæjar, Íþróttabandalag Reykjavíkur og UMSK, sem samsett er úr Breiðabliki og Aftureldingu.

Í 2. deild keppa lið Sundfélagsins Ægis, UMFB/Vestri, ÍBR b, SH b, og ÍRB b í kvennaflokki og í karlaflokki keppa lið Sundfélagsins Ægis, ÍBR b og SH b.

Nú þegar tveimur hlutum er lokið í báðum deildum er stigastaða félaga þannig:

Fyrsta deild í karlaflokki.

  1. sæti Sundfélag Hafnarfjarðar                     9987 stig
  2. sæti Íþróttabandalag Reykjavíkur              8821 stig
  3. sæti UMSK                                                      8681 stig
  4. sæti Íþróttabandalag Reykjanesbæjar      7881 stig
  5. sæti Sundfélag Akraness                              5611 stig

Fyrsta deild í kvennaflokki.

  1. sæti Sundfélag Hafnarfjarðar                     9918 stig
  2. sæti Íþróttabandalag Reykjanesbæjar      9601 stig
  3. sæti Íþróttabandalag Reykjavíkur              8038 stig
  4. sæti UMSK                                                      7813 stig
  5. sæti Sundfélag Akraness                              6966 stig

Önnur deild í karlaflokki

  1. sæti Íþróttabandalag Reykjavíkur b          4823 stig
  2. sæti Sundfélag Hafnarfjarðar b                  4246 stig
  3. sæti Sundfélagið Ægir                                  3645 stig

Önnur deild í kvennaflokki

  1. sæti Íþróttabandalag Reykjanesbæjar b  6967 stig
  2. sæti Sundfélag Hafnarfjarðar b                  6256 stig
  3. sæti Íþróttabandalag Reykjavíkur b          6018 stig
  4. sæti UMFB/Vestri                                         1948 stig
  5. sæti Sundfélagið Ægir                                  1191 stig

Myndir með frétt

Til baka