Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýtt Íslandsmet hjá stelpunum í Kazan í 4x100m fjórsundi

09.08.2015Nýtt Íslandsmet í 4x100m fjórsundi hjá stelpunum í Kazan !

Íslensku stelpurnar syntu í morgun 4x100m fjórsund á tímanum 4.04.43  á nýju Íslandsmeti.
Gamla metið var 4.06.64 sett í Debrecen 27.05.2012. 
Sveitin lenti í 18 sæti af 25 sveitum.
Sveitin var skipuð Eygló Ósk Gústafsdóttur, Hrafnhildi Lúthersdóttur, Jóhönnu Gerðu Gústafsdóttur og Bryndísi Rún Hansen.

Seinnpartinn í dag er það svo úrslitasundið 50m bringusund hjá Hrafnhildi Lúthersdóttur.
Til baka