Beint á efnisyfirlit síðunnar

Eygló Ósk fjórða inn í undanúrslit í dag og setti nýtt íslands- og norðurlandamet

07.08.2015

Eygló Ósk synti nú rétt í þessu 200m baksund á nýju íslandsmeti 2.09.16 gamla metið setti hún á Íslandsmeistaramótinu í apríl,  2.09.36.  Eygló er fjórða inn í undanúrslit ásamt Dariu K Ustinova frá Rússlandi en þær syntu á nákvæmlega sama tíma. Undanúrslitin fara fram kl 14.49 í dag. 

Enn einn spennandi dagur framundan í Kazan

 

Til baka