Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hrafnhildur setti nýtt íslandsmet 2.23.06, varð jöfn Jinglin Shi frá Kína, syndir aftur á eftir ca kl 16.38

06.08.2015Hrafnhildur synti nú rétt í þessu 200m bringusund í undanúrslitum á HM50 í Kazan.
Hún synti á nýju íslandsmeti 2.23.06. Það urðu tvær jafnar í 7 sæti og þarf því Hrafnhildur að synda aftur eftir síðustu grein í kvöld ca kl 16.38 á ísl tíma, til að skera úr um hver fær áttunda sætið inn í úrslit. Hún syndir á móti Jinglin Shi frá Kína.
Til baka