Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íslands- og Norðurlandamet hjá Eygló á fyrsta degi ÍM50

10.04.2015Íslandsmeistaramótið í 50m laug hófst í morgun í Laugardalslaug. Syntar voru undanrásir í morgun og úrslit nú seinni partinn.

Blönduð sveit SH setti Íslandsmet í 4x50m fjórsundi í blönduðum flokki þegar þau syntu á 1:51,33.
Sveitina skipuðu Kolbeinn Hrafnkelsson, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Predrag Milos og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir.

Eygló Ósk Gústafsdóttir gerði sér lítið fyrir og bætti 11 daga gamalt Íslands- og Norðurlandamet sitt í 200m baksundi þegar hún synti úrslit í greininni á 2:09.36. Það gamla var 2:09.86.

Þá bætti Brynjólfur Óli Karlsson úr Breiðabliki eigið drengjamet í 50m baksundi þegar hann fór fyrsta sprett í boðsundi á 29,30. Gamla metið var 29,92 frá því í fyrra. Brynjólfur setti svo annað drengjamet í 200m baksundi og var það 20 ára gamalt met Arnar Arnarsonar. Brynjólfur synti á 2:14,65 en gamla metið var 2:16,30.

Sveit ÍRB setti þá stúlknamet í 4x200 skriðsunds boðsundi þegar þær syntu á 8:51,89. Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Sunneva Dögg Friðriksdóttir, Stefanía Sigþórsdóttir og Íris Ósk Hilmarsdóttir skipuðu sveitina. Gamla metið átti sveit ÍRB einnig en það var 8:52,51 frá því í nóvember 2013.

Keppni hefst aftur í undanrásum kl. 10 í fyrramálið.
Til baka