Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vladimir Salnikov verður fulltrúi FINA á Smáþjóðaleikum á Íslandi

01.04.2015

Vla­dimir Salni­kov, fjórfaldur Ólympíumeistari og margfaldur heimsmeistari í 1500 metra skriðsundi, verður fulltrúi FINA, Alþjóðasundsambandsins, á Smáþjóðal­eikunum sem verða á Íslandi í byrj­un júní nk. Smáþjóðaleikar eru Ólympískt verkefni og því er það að alþjóðasambönd íþróttagreinanna sem keppt er í á leikunum hverju sinni eiga fulltrúa á staðnum til eftirlits og aðstoðar.

Það er mikill heiður að stjórn FINA skuli hafa tilnefnt Salni­kov, en hann er eitt af stóru nöfnum sundsögunnar, synti 800 metra skriðsund sund fyrstur manna á skemmri tíma en átta mín­út­ur og 1.500 metra skriðsund und­ir 15 mín­út­um. Hann sló Evr­ópu­metið í 1.500 metra skriðsundi, á Ólymp­íu­leik­un­um í Montreal 1976 og endaði fimmti í greininni. Hann var Evr­ópu­meist­ari í 400, 800 og 1.500 metra skriðsundi á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu árið eft­ir, sigraði alla keppninauta sína í 800 og 1.500 metra skriðsundi næstu ár og vann til gull­verðlauna á Ólymp­íu­leik­um, Heimsmeistaramótum og Evr­ópu­meist­ara­mót­um ásamt því að setja Ólympíu-, heims- og Evrópumet. 

Salni­kov synti undir 15 mínútum í 1.500 m skriðsundi, fyrstur manna, á Ólymp­íu­leik­un­um í Moskvu 1980, 14.58,27 mín­út­um. Hann bætti heims­metið sitt tveim­ur árum síðar er hann synti vega­lengd­ina á 14.54,76. Það met stóð í níu ár, þannig að hann hélt metinu í greininni í 11 ár. 

Salni­kov gat ekki varið ólympíutitil sinn í á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984, þar sem Sovétríkin hunsuðu þá leika líkt og Bandaríkin höfðu gert gagnvart leikunum í Moskvu 1980 og þurfti sér­staka und­anþágu til þess að vera í ólymp­íuliði Sov­ét­manna á Ólympíuleikunum í Seúl 1988 vegna aldurs.  Hann afsannaði all­ar kenningar um að hann væri orðinn of gam­all til þess að blanda sér í keppni þeirra bestu með því að vinna gull­verðlaun­in í 1.500 metra skriðsundi. Hann var 28 ára gamall og sagðist hann ekk­ert muna eft­ir síðustu 20-30 metr­um sunds­ins svo þreyttur var hann. Þess má til gamans geta að á þeim leikum synti Ragnar Guðmundsson 1500 metra skriðsund fyrir Íslands hönd og setti þar Íslandsmet í greininni,  15:57,54, sem stóð allt til ársins 2011 þegar Anton Sveinn Mckee sló það á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein 2011 er hann synti þar á 15:49,61.

Vladimir Salnikov hefur fylgt íþróttinni sinni vel eftir í kjölfar keppnisferlsins. Hann var í Ólympíunefnd Sovétríkjanna frá 1984 til 1991 og landsliðsþjálfari Sovéska sundliðsins í tvö ár eftir hann hætti keppni. Hann vann hjá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í sundtengdum vörum og var varaformaður Sovéska sundsambandsins síðustu árin sem Sovétríkin lifðu. Á árunum 1991 til 2000 sat hann í íþróttamannanefnd FINA og var meðlimur sundtækninefndar LEN á tímabili.

Hann hefur um langt árabil setið í stjórn Rússneska sundsambandsins og verið formaður þar frá árinu 2009. Hann situr í stjórn LEN, Evrópska sundsambandsins og einnig í stjórn FINA, Alþjóðasundsambandsins.

Salnikov hefur hlotið ýmsa viðurkenningu heima og heiman.  Hann var tam sæmdur Lenin orðunni 1985 og heiðursorðu rússneska lýðveldisins (sambærileg fálkaorðunni) 2010.  Hann var tekinn inn í Alþjóðlega heiðurshöll sundíþrótta 1993.

Myndir með frétt

Til baka