Beint á efnisyfirlit síðunnar

61. ársþingi Sundsambands Íslands lokið

07.03.201561. sundþingi var slitið í dag. Þingið var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fyrir þinginu lágu mál sem varða innra starf sundhreyfingarinnar og útbreiðslu. Þingið var starfsamt, ný stefna og afreksstefna var samþykkt, uppfærðar fjárhagsáætlanir fyrir árin 2015 og 2016 og ákvörðun um þáttöku- og þjónustugjöld og fleiri mál voru til umræðu á þinginu og ýmist samþykkt eða send til stjórnar SSÍ til frekari vinnslu. Velta SSÍ síðastliðin tvö ár var 49 milljónir 2013 og 43 milljónir 2014.

Á þinginu var kosin ný stjórn samkvæmt lögum SSÍ. Þau Bjarney Guðbjörnsdóttir ÍA, Elsa María Guðmundsdóttir ÍBA, Pétur Einarsson UMSK, Richard Kristinsson ÍBR voru kjörin til 2019, Ingibjörg Kristinsdóttir ÍBR var kjörin til 2017 og þau Eva Hannesdóttir ÍBR og Jónas Tryggvason ÍBR voru kjörin í varastjórn til tveggja ára. Fyrir í stjórn sitja þau Hörður J. Oddfríðarson formaður, Hlín Ástþórsdóttir varaformaður og Lóa Birna Birgisdóttir gjaldkeri til ársins 2017.
Á laugardeginum var haldin stutt ráðstefna um uppbyggingu sundhreyfingarinnar. Þar fluttu þeir Lasse Hoel fyrrum sundmaður og núverandi starfsmaður norska sundsambandins og Jacky Pellerin landsliðsþjálfari erindi sem þingfulltrúar unnu svo úr í vinnuhópum.
Þingforsetar á sundþingi voru þeir Benedikt Sigurðarson fyrrum formaður SSÍ og Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Þingið samþykkti tillögu stjórnar um veitingu heiðursmerkja Sundsambands Íslands.
Þrír einstaklingar voru sæmdir gullmerki sambandsins, en það skal einkum veitt þeim einstaklingum sem um lengri tíma hafa unnið afburða gott starf í þágu sundhreyfingarinnar eða skilað yfirburðaárangri meðal íslenskra sundmanna.

Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir er fædd 1974. Hún er fyrrum landsliðskona í sundi var ma keppandi á Smáþjóðaleikum fyrir Íslands hönd. Arna Þórey átti hefur starfað lengi í sundhreyfingunni, eftir að hún hætti æfingum í keppnissundi hóf hún að þjálfa sundfólk fyrst hjá Sundfélaginu Ægi en hin síðari ár hjá Sunddeild Breiðabliks. Arna Þórey hefur setið í stjórn Sundfélagsins Ægis og einnig í ýmsum nefndum SSÍ nú síðast í Þjálfararáði SSÍ. Hún hefur jafnframt farið sem þjálfari í mörg landsliðsverkefni fyrir hönd SSÍ og ávallt reynst sundfólkinu sem hún sinnir einstaklega vel. Hún hefur lagt hug sinn og hjarta í sundhreyfinguna sem athafnamikill sundmaður og þjálfari.

Gísli Kristinn Lórenzson er fæddur 1937. Hann hóf ungur þáttöku í starfi íþróttafélaga og lagði að mörkum lengi með Íþróttafélaginu Þór á Akureyri og Skíðaráði Akureyrar. Kunnastur er hann eflaust fyrir langt og farsælt starf að Andrésar Andarleikum barna á skíðum sem fara fram í Hlíðarfjalli.
Árin 1996 til 2007 var hann forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar. Á þeim vettvangi lagði Gísli Kristinn eða Kiddi Lór eins og flestir kunnugir tala um hann, sinn metnað í að byggja upp aðstöðu á fyrir sundíþróttina á Akureyri og til að auðvelda sundmönnum sundfélagsins Óðins að skila árangri. Kiddi Lór fylgdist með sundfólki Óðins og studdi þau í keppni og ma. heimsótti hann þau á sundmót í höfuðborginni. Hann eignaðist vinskap þeirra margra til framtíðar.
Sundsamband Íslands átti farsælt samstarf við Gísla Kristinn og Sundfélagið Óðinn um framkvæmd AMÍ á starfstíma hans. Mótin fóru fram á Akureyri amk 7 sinnum á þessu tímabili og hafa orðið mörgum sundmönnum og fjölskyldum þeirra minnisstæð.
Sundsamband Ísland vill heiðra Gísla Kristinn Lórenzson fyrir störf sín í þágu sundíþróttarinnar og ágætt samstarf við hann sem forstöðumann Sundlaugar Akureyrar.

Hafþór Guðmundsson var ungur að leika sér í sundi með félögum sínum þegar Erlingur Jóhannsson sá í honum efni. Síðan þá hefur hann verið viðloðandi sundhreyfinguna. Hann var sundmaður í Sunddeild KR þar sem hans besti árangur var í baksundi, flugsundi og fjórsundi,. Hann var landsliðsmaður í sundi og keppti ma landskeppnum gegn Skotlandi, á NMU 1976 og svo stundaði hann sundknattleik á síðari hluta ferilsins. Hafþór var þjálfari hjá Sunddeild KR, Sundfélaginu Ægi og Sunddeild Ármanns auk þess að þjálfa hjá Sunddeild Stjörnunnar en þá deild stofnaði Hafþór. Hann var landsliðsþjálfari bæði í einstökum verkefnum en einnig sem fastur maður í þvi rúmi. Hafþór fór með landsliðinu á Ólympíuleikana í Los Angeles 1984 og var einnig í stöðunni frá árinu 1997 til 1998.
Hann var formaður Sunddeildar KR 1978-1980.
Hafþór hefur setið í landsliðsnefnd, fræðslunefnd og fleiri nefndum SSÍ og hann var um langt árabil fulltrúi Íslands í fræðslunefnd Norræna sundsambandsins. Hann vann ásamt öðrum mikið starf við að koma þjálfaramenntakerfinu okkar í nothæft form og stóð á bakvið það verkefni eins og klettur. og Hann hefur alið upp íslenskt sundfólk á ýmsa vegu, bæði sín eigin börn og annarra, verið lærifaðir þeirra sem sundmanna en ekki síður sem þjálfara.

6 einstaklingar voru sæmd silfurmerki SSÍ en það skal veita þeim sem unnið hafa framúrskarandi gott starf að málefnum sundhreyfingar eða hafa komið fram fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum vettvangi sundhreyfingar. Einnig skulu sundmenn sem náð hafa viðurkenndum alþjóðlegum árangri hljóta silfurmerkið – og þar með allir þeir sem keppt hafa í sundi á Ólympíuleikum fyrir Íslands hönd.
Hafliði Halldórsson
Ingi Þór Ágústsson
Jón Oddur Sigurðsson
Karen Malmquist
Málfríður Sigurhansdóttir
Unnur Sædís Jónsdóttir

Myndir með frétt

Til baka