Beint á efnisyfirlit síðunnar

Góðar fréttir af Ingibjörgu Kristínu

09.02.2015

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, sundkona úr SH, gerði það gott um helgina en hún stundar nám og æfir í Arizona. Ingibjörg sigraði 100 yarda baksund á svokölluðu Dual móti háskólanna þegar hún synti á 52,96 og er það 25. besti tíminn í Bandaríkjunum þessa stundina. 

Árangurinn ætti einnig að gefa henni keppnisrétt á NCAA - Bandaríska háskólameistaramótið sem haldið er í lok mars.

 

Til baka