Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þróttur í Vogunum óskar eftir Þjálfara

08.01.2015Sundþjálfari óskast! Þróttur Vogum auglýsir eftir sundþjálfara fyrir yngri hópa. Við leitum eftir faglegum einstakling sem er tilbúin að vinna með okkur í uppbyggilegu starfi í Vogunum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfið felst í almennri þjálfun, ásamt því að fara á mót. Reynsla af sundþjálfun og/eða menntun í íþróttafræðum er kostur. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2015. Frekari upplýsingar fást hjá framkvæmdastjóra félagsins í síma 868-5508 eða á netfangið throttur@throttur.net Umsóknir sendast á throttur@throttur.net
Til baka