Beint á efnisyfirlit síðunnar

3. hluta NMU lokið , úrslit í kvöld

13.12.2014Þriðji hluti NMU var í morgun og eigum við nokkra í úrslitum seinna í dag. Eydís Ósk Kolbeinsdóttir synti 400m.fjórsund á 5:05,14mín. og er 2. inn í úrslit. Bryndís Bolladóttir synti 100m skriðsund á 58,04sek. og varð 5. inn í úrslit. Íris Ósk Hilmarsdóttir synti 400m fjórsund á 5:13,85min. og varð 7. inn í úrslit. Baldvin Sigmarsson synti 400m fjórsund 4:35,00mín. og er 8. inn í úrslit. Harpa Ingþórsdóttir synti 100m skriðsund á 1:00,36mín. og varð í 13. sæti. Karen Mist Arngeirsdóttir synti 50m bringusund á 34,69sek.,varð í 13.sæti. Arnór Stefánsson synti 100m skriðsund á 54,66sek. og varð 15. Íris Ósk Hilmarsdóttir synti 50m baksund á 31,54sek. og varð í 15. sæti. Þröstur Bjarnason synti 400m fjórsund á 4:43,87min. og varð 12. Úrslit hefjast kl. 16:00 að íslenskum tíma.

Myndir með frétt

Til baka