Beint á efnisyfirlit síðunnar

ÍM25 að hefjast - Úrslit á SportTV

14.11.2014

Nú kl. 10 hefst keppni á Íslandsmeistaramótinu í 25m laug í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Er þetta þriðja árið í röð sem það er haldið í samvinnu við Sundfélag Hafnarfjarðar enda hefur vel til tekist síðustu ár.

Þetta árið eru 136 keppendur skráðir í mótið úr 9 liðum, 78 konur en 58 karlar. Af þessum 136 eru 8 keppendur frá Frakklandi sem taka þátt og veita íslensku sundfólki góða keppni. 

Mótið stendur alla helgina en undanrásir hefjast kl. 10 alla morgna en úrslit kl. 16 og verður úrslitahlutum streymt beint á netið af SportTV.

Einnig má fylgjast með beinum úrslitum á vefnum hér

Þá er mótið á Meet Mobile en mótið finnst þegar leitað er að "Islandsmeistaramotid i 25m 2014"

 

Til baka