Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anton Sveinn með glæsilegan árangur um helgina

20.07.2014

 

Anton Sveinn McKee bætti eigið Íslands­met í 200 metra bringsundi sem staðið hafði í nokkrar klukkustundir þegar hann synti á 2:10,72 mín í A-úrslitum á mót í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Um leið setti Anton Sveinn mótsmet og hafði sigur í greininni.  Með þessu sundi hefur hann náð 14 sæti á heimslistanum  í 200m bringusundi.
Íslandsmetið sem Anton Sveinn setti í undanrásum var 2:12,23 mín.   

Anton Sveinn hefur verið í Alabama í tæpt ár og hefur sýnt miklar framfarir á þessu ári. 
Á föstudaginn setti Anton einnig íslandsmet í 400m skriðsundi  synti á tímanum 3.54.36 en hann átti gamla metið sem var 3.54.67.
Virkilega flottur árangur hjá Antoni um  helgina.

Til baka