Beint á efnisyfirlit síðunnar

Unglingameistaramót Íslands 2014

25.06.2014

Um helgina fer Unglingameistaramót Íslands, UMÍ fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði í samstarfi við Sundfélag Hafnarfjarðar. Um 100 keppendur eru skráðir til leiks að þessu sinni frá 10 félögum. Synt er í beinum úrslitum í stúlkna og piltaflokkum 15-17 ára annarsvegar og opnum flokki 15-20 ára. Sú breyting er á frá síðasta ári að nú hefur það sundfólk, 13 og 14 ára, leyfi til að synda á mótinu hafi það synt greinarnar á AMÍ og séu þau með lágmörk á UMÍ.

Mótið hefst kl. 10.00 á laugardag og er í þremur hlutum. Hver hluti er áætlaður um tveir tímar að lengd. 

Nánar um tímaáætlun, keppendalista og annað má finna hér á UMÍ síðunni okkar

Upplýsingar um UMÍ á heimasíðu SH

Til baka