Beint á efnisyfirlit síðunnar

Úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ - hlutur SSÍ 9,8 milljónir

24.01.2014Afrekssjóður ÍSÍ úthlutaði í morgun styrkjum til sérsambanda.  

Samtals var úthlutað 96.910.000,00 krónum og þar af fékk Sundsamband Íslands 9.840.000,00 krónur sem skiptist á eftirfarandi hátt:

- Landsliðsverkefni                                                                             kr. 2.500.000,00

- Unglingalandsliðsverkefni                                                              kr.     500.000,00

- A styrkur vegna verkefna Eyglóar Óskar Gústafsdóttur              kr. 2.400.000,00

- A styrkur vegna verkefna Hrafnhildar Lúthersdóttur                    kr. 2.400.000,00

- C styrkur venga verkefna Antons Sveins Mckee                           kr.    720.000,00

- C styrkur vegna verkefna Ingibjargar Kristínar Jónsdóttur         kr.    720.000,00

- Eingreiðslustyrkir vegna verkefna einstaklinga samtals            kr.    600.000,00  sem skiptist þannig:

             Jóhanna Gerða Gústafsdóttir            kr.     200.000,00

             Alexander Jóhannesson                    kr.     200.000,00

             Kristinn Þórarinsson                           kr.    200.000,00

Frjálsíþróttasamband Íslands fékk 9.640.000,00 kr auk 2.500.000,00 sem sambandið fékk aukalega fyrir verkefni Anitu Hinriksdóttur. Handkattleikssamband Íslands fékk 16.000,000,00,  Íþróttasamband fatlaðra fékk 8.020,000,00 og KKÍ fékk 7.000.000,00 krónur.

Fram kom í máli Lárusar Blöndal forseta ÍSÍ og Andra Stefánssonar sviðsstjóra afrekssviðs ÍSÍ að styrkjum Afrekssjóðs væri úthlutað til sérsambanda eingöngu.  Styrkjum SSÍ væri skipt upp sem styrkjum fyrir landsliðsverkefni annars vegar og sem styrki fyrir áætluð verkefni einstaklinga hins vegar.  Í tilfelli SSÍ þá fengi sambandið um 3.000.000,00 króna í landsliðsverkefni eða um þriðjung af styrktarfé til sambandins.  Annað væri til að fjármagna verkefni einstaklinga.  Umsýsla styrkjanna er á höndum sérsambandanna.

Hér má sjá fréttatilkynningu ÍSÍ um Afreksstyrki 2014

Til baka