Beint á efnisyfirlit síðunnar

Eygló Ósk og Anton Sveinn sundfólk ársins 2013

24.12.2013Í samræmi við samþykkt stjórnar SSÍ 4. desember 2013 og fyrri samþykktir SSÍ um val á sundfólki ársins er ljóst að Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sundfélaginu Ægi, er sundkona ársins 2013 og Anton Sveinn Mckee, Sundfélaginu Ægi, er sundmaður ársins 2013.  

Eftirfarandi viðmið gilda  fyrir valið: 
a) FINA stig úr bestu grein sundfólksins úr báðum brautarlengdum voru vegin saman
b) Árangur sundfólksins á Íslandsmeistaramótum í báðum brautarlengdum var metinn miðað við úrslit greina. 
c) Íslandsmet í báðum brautarlengdum voru metin. 
d) Staðsetning á heimslista í 17. desember 2013 í báðum brautarlengdum var athuguð og metin með. 
e) Þátttaka og árangur í landsliðsverkefnum var metinn. Annars vegar var veginn fjöldi verkefna og hins vegar úrslit greina og í hvaða sæti sundfólkið lenti í greinum sínum.
f) Ástundun sundfólksins var metin. 
g) Íþróttamannsleg framganga sundfólksins var metin. 

Eygló Ósk Gústafsdóttir er 18 ára í Sundfélaginu Ægi.  Hún stundar nám í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og nýtur A-styrks Afrekssjóðs ÍSÍ.
Hún fékk 861 Fina stig fyrir 100 metra baksund á Danish Open í mars sl og 820 Fina stig fyrir 200 metra baksund á ÍM25 2013.
Hún synti 5 greinar á ÍM50 og sigraði í 4 og synti síðan 6 greinar á ÍM25 og sigraði í þeim öllum.
Eygló setti 8 Íslandsmet á árinu, í 25 metra laug bætti hún metin í 400m fjórsundi, 200m baksundi, 200m fjórsundi og fjórbætti metið í 100m baksundi.  Í 50 metra laug bætti hún metið sitt í 200m baksundi.
Hún kemur inn á heimslista í 25 metra laug í 24. sæti í 200 metra baksundi og nr. 45 í sömu grein í 50 metra laug.
Eygló Ósk tók þátt í Smáþjóðaleikum í Lúxemborg 2013, var afar öflug þar og sigraði nánast allar sínar greinar,  keppti á HM50 í Barcelona en þar náði hún ekki markmiðum sínum og keppti svo á EM25 í Danmörku þar sem hún stóð sig mjög vel náði í tvígang inn í úrslit og lenti í 7. Sæti í 200 metra baksundi.
Eygló Ósk er reglusöm og dugleg þegar kemur að æfingum, fylgir leiðsögn og mætir vel.  Hún er kappsöm og lætur sjaldan utanaðkomandi truflun hafa áhrif á sig. Húnhefur þroskast mjög mikið sem afreksíþróttakona á síðustu tveimur árum og gætir vel að sér í samskiptum við aðra, hvort sem er samherja eða móherja.

Anton Sveinn Mckee er í Sundfélaginu Ægi.  Hann stundar nú nám í The University of Alabama í Bandaríkjunum og er á styrk þar vegna sundiðkunnar.  Hann nýtur B- styrks Afrekssjóðs ÍSÍ.
Hann fékk 830 Fina stig fyrir 200 metra bringusund á HM50 2013 og 841 Fina stig fyrir 1500 metra skriðsund á HM25.
Anton sigraði allar greinar sínar á ÍM50 2013 en tók ekki þátt í ÍM25 2013. 
Hann setti samtals 4 Íslandsmet á árinu.  Í 50 metra laug, 400m fjórsund og 400m skriðsund og í 25 metra laug, 800m skriðsund og 1500m skriðsund.
Hann kemur inn á heimslista í 25 metra laug nr. 50 í 1500 metra skriðsundi og í 50 metra laug nr. 121 í 800 metra skriðsundi.
Anton Sveinn tók þátt í Smáþjóðaleikum í Lúxemborg 2013 og stóð sig afarvel á þeim leikum, var langoftast í fyrsta sæti í sínum greinum.  Hann keppti einnig á Heimsmeistaramótinu í Barcelona og sýndi þar áræðni og dug.  
Hann er duglegur og metnaðarfullur, hvort sem er á æfingum eða í keppni.  Hann mætir vel á æfingar og tekur leiðsögn, lagar sig vel að aðstæðum, sýnir íþróttamannslega hegðun hvar sem hann kemur og er leiðtogi í hópnum.

Til baka