Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ingibjörg með nýtt Íslandsmet í 50 metra baksundi

31.07.2013Ingibjörg Kristín Jónsdóttir setti rétt í þessu nýtt Íslandsmet í 50 metra baksundi á HM50 í Barcelona.  Hún synti greinina á 28,62 sekúndum sem er 27/100 bæting frá fyrra meti sem var 28,99 sekúndur. Hún átti það met sjálf, setti það á ÍM50 nú í apríl.  Hún lenti í 17 sæti í greininni af 53 keppendum, en 16 hröðustu fara í undanúrslit.
Jacky Pellerin landsliðsþjálfari sagði að sundið hennar hefði verið mjög gott, frábær byrjun og gott úthald.  Sjálf var Ingibjörg nokkuð ánægð en fannst hún hafa getað gert betur í endann.
Engu að síður gott sund hjá Ingibjörgu á nýju Íslandsmeti.
Á facebooksíðu SSÍ er hægt að finna stutt viðtal við Ingibjörgu.
Til baka