Beint á efnisyfirlit síðunnar

EMU - Dagur 4

13.07.2013
Ólöf Edda og Íris Ósk hafa nú lokið keppni á Evrópumóti Unglinga í Póllandi.  Kristinn á eitt sund eftir 400m fjórsund á morgun.  Öll syntu þau í undanrásum í morgun rétt við sína bestu tíma. 
Kristinn Þórarinsson fór 50m baksund á 27.99.
Íris Ósk Himarsdóttir fór 100m baksund á 1:06.94
Ólöf Edda Eðvarsdóttir fór 200m fjórsund á 2:27.87.
Seinni partinn verður svo farið upp í laug og horft á undanúrslit og úrslit.  Það verður t.d. spennandi að sjá Ólympíumeistarann frá Litháen Ruta Meilutyte eða „strætóinn“ eins og stelpurnar kalla hana synda 100m bringusund.
Kv. Raggi.
Til baka