Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ólafur E Rafnsson forseti ÍSÍ er látinn.

19.06.2013

Ólafur Eðvarð Rafnsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, er látinn fimmtugur að aldri en hann var bráðkvaddur í Sviss fyrr í dag þar sem hann sótti fund miðstjórnar FIBA World (Alþjóða Körfuknattleikssambandsins). Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Fram kemur í tilkynningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands að Ólafur hafi verið formaður Körfuknattleikssambands Íslands frá árinu 1996 til 2006 en það ár var hann kosinn forseti ÍSÍ. Ólafur var kjörinn forseti FIBA Europe árið 2010 og tók í lok síðasta mánaðar við stöðu forseta framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna.

Sjálfur stundaði hann körfuknattleik um árabil með Haukum og lék m.a. með landsliði Íslands. „Íþróttahreyfingin harmar fráfall góðs félaga og öflugs foringja. Íþróttahreyfingin vottar fjölskyldu Ólafs  sína dýpstu samúð.“

Til baka