Opna Íslandsmótið í Garpasundi 2023
----> BEIN ÚRSLIT <----
Íslandsmótið í garpasundi (IMOC) verður haldið í Sundlaug Kópavogs dagana 5. og 6. maí 2023. Keppt er í 25m laug.
Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 27. apríl 2023. Þeir sem ekki hafa yfir að ráða Splash forriti geta sent skráningar í tölvupósti á netfangið sundmot@iceswim.is. Mikilvægt er að fram komi fullt nafn, kennitala, félag, greinar og skráningartímar. Hægt verður að leiðrétta skráningar fram til kl.12 að hádegi þriðjudaginn 2. maí 2023.
Eigi einstaklingur ekki ekki gildan tíma í grein sem hann vill synda á mótinu má hann skrá sig á áætluðum tíma, sem t.d. hefur náðst á æfingu. Þetta er gert til að auðvelda gerð tímaáætlunar og jafna riðlana á mótinu. Gott er að miða við tíma sem synt var á innan síðustu þriggja ára. Öllum er þó ennþá frjálst að skrá sig án tíma (No Time, NT).
Endanlegur keppendalisti fyrir mótið verður svo gefinn út fimmtudaginn 4. maí 2023
Skráningar sendast með tölvupósti á sundmot@iceswim.is
Skráningargjald:
Fyrsta grein einstaklings - kr. 3200,-
Önnur grein einstaklings - kr. 1700,-
Þriðja grein einstaklings - kr. 1700,-
Allar greinar eftir það eru keppendum að kostnaðarlausu
Skráning einstaklings í boðsund en enga aðra einstaklingsgrein - kr. 3200,-
LOKAHÓF:
Lokahóf IMOC verður með aðeins öðru sniði en fyrr. PARTÝ - smáréttir - gleði og dans!
Við verðum í Fjósinu á Hlíðarenda, mæting kl. 19,00. Verð á mann aðeins kr. 4.500.
Drykkir á sanngjörnu verði í boði á staðnum, en einnig er leyfilegt að koma með vínflösku og greiða kr. 1.500 í tappagjald.
Vinsamlegast greiðið eigi síðar en fimmtudag 5.5., inn á reikning 0515-26-392939, kt. 170376-2939, greiðsla telst sem skráning! tilkynning á iseygretathor@gmail.com -
Vantar gistingu í Reykjavík eða hefurðu áhyggjur af að fá ekki leigubíl heim eftir lokahófið? Boðið er upp á gistingu á góðum kjörum í þægilegu göngufæri frá Hlíðarenda.
Fosshótel Rauðará***, kr. 17.900 nóttin, með morgunverði (Bókun thordis@islandshotel.is) eða
Centerhótel Laugavegur**** eða Þingholt**** á kr. 19.900 nóttin með morgunverði (Bókun iseygretathor@gmail.com)
IMOC 2019 - Heildarúrslit PDF
IMOC 2019 - Heildarúrslit Splash
IMOC 2018 - Heildarúrslit PDF
IMOC 2017 Heildarúrslit.pdf
IMOC2016_Results_pdf
IMOC2016_full_results_lenex (Splash)
Úrslit IMOC 2014
Úrslit IMOC 2014 af heimasíðu Breiðabliks
Úrslit IMOC 2013:
Úrslit IMOC 2013.pdf
Hy-tek - úrslit IMOC 2013.zip
1. grein
Mótið heitir Opna Íslandsmeistaramótið í Garpasundi (Icelandic Masters Open Championsip, IMOC) og skal haldið ár hvert í apríl eða maí.2. grein
Mótið skal vera opið alþjóðlegt sundmót.3. grein
Mótið skal haldið í 25 m laug. Sækja skal um að halda mótið skv. 3. grein Almennra ákvæða Sundsambands Íslands.4. grein
Hver keppandi má aðeins keppa einu sinni í hverri grein boðsunds en hvert félag má senda fleiri en eitt lið til keppni.5. grein
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Fyrri dagur
1. Karla/men A-O 800 m skrið/free
2. Kvenna/women A-O 800 m skrið/free
3. Karla/men A-O 50 m flug/fly
4. Kvenna/women A-O 50 m flug/fly
5. Karla/men A-O 100 m bringa/breast
6. Kvenna/women A-O 100 m bringa/breast
7. Karla/men A-O 50 m skrið/free
8. Kvenna/women A-O 50 m skrið/free
Hlé/Break 10 mín.
9. . Kvenna/women A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m skrið/free
10. Karla/men A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m skrið/free
Seinni dagur
Fyrri hluti
11. Kvenna/women A-O 400 m skrið/free
12. Karla/men A-O 400 m skrið/free
13. Kvenna/women A-O 100 m flug/fly
14. Karla/men A-O 100 m flug/fly
15. Kvenna/women A-O 50 m bringa/breast
16. Karla/men A-O 50 m bringa/breast
17. Kvenna/women A-O 100 m bak/back
18. Karla/men A-O 100 m bak/back
19. Kvenna/women A-O 200 m skrið/free
20. Karla/men A-O 200 m skrið/free
21. Kvenna/women A-O 100 m fjór/medley
22. Karla/men A-O 100 m fjór/medley
Hlé/break 10 mín
23. 2 karlar/men + 2 konur/women A, B, C, D, E, og/and F 4 x 50 m fjór/medley
Seinni hluti
24. Karla/men A-O 200 m fjór/medley
25. Kvenna/women A-O 200 m fjór/medley
26. Karla/men A-O 50 m bak/back
27. Kvenna/women A-O 50 m bak/back
28. Karla/men A-O 200 m bringa/breast
29. Kvenna/women A-O 200 m bringa/breast
30. Karla/men A-O 100 m skrið/free
31. Kvenna/women A-O 100 m skrið/free
Hlé/break 10 mín
32. Kvenna/women A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m fjór/medley
33. Karlar/men A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m fjór/medley
Aldursflokkaskipting / Age group
20 - 24 ára keppa sem gestir og skulu ekki reiknast til stiga.
20-24 25-29 30-34 35-39 40-44
45-49 50-54 55-59 60-64 65-69
70-74 75-79 80-84 85-90 90+
Aldursflokkaskipting í 4x50 m boðsundi / Age groups in 4x50 m medley and free
A = 100 - 119 B = 120 - 159 C = 160 - 199
D = 200 - 239 E = 240 - 279 F = 280 -
6. grein
Fyrir keppni í einstaklingssundum skal veita verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti. Fyrir keppni í
boðsundum skal veita verðlaun fyrir fyrsta sæti. Allir þátttakendur skulu fá viðurkenningarskjöl og skal
mótshaldari standa straum af kostnaði vegna verðlauna.
7. grein
Stig skulu veitt fyrir hvert sæti í einstaklingssundi sem hér segir: 9, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1 en helmingi fleiri stig fyrir
boðsund. Stigahæsta félagið skal hljóta farandbikar. Til að eignast bikarinn skal vinna hann þrjú ár í röð eða
fimm sinnum alls. Ef félögin eru jöfn að stigum skulu boðsundin ráða röð þeirra.
8. grein
Tæknifund eða -fundi skal halda samkvæmt nánari auglýsingu fyrir upphaf móts