Beint á efnisyfirlit síðunnar

Opna Íslandsmótið í Garpasundi 2026

Íslandsmótið í garpasundi (IMOC) verður haldið í Vatnaveröld, Reykjanesbæ dagana 24. og 25. apríl 2026. Keppt er í 25m laug.


Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 16. apríl 2026. Þeir sem ekki hafa yfir að ráða lenex forriti geta sent skráningar beint í gegnum Swimify Admin. Ef þörf er á frekari upplýsingum er hægt að senda póst á sundmot@iceswim.is. Hægt verður að leiðrétta skráningar fram til kl.12 að hádegi þriðjudaginn 21. apríl 2026.

Eigi einstaklingur ekki ekki gildan tíma í grein sem hann vill synda á mótinu má hann skrá sig á áætluðum tíma, sem t.d. hefur náðst á æfingu. Þetta er gert til að auðvelda gerð tímaáætlunar og jafna riðlana á mótinu. Gott er að miða við tíma sem synt var á innan síðustu þriggja ára. Öllum er þó ennþá frjálst að skrá sig án tíma (No Time, NT).

Endanlegur keppendalisti fyrir mótið verður svo gefinn út fimmtudaginn 23. apríl 2026
Skráningum skal skilað í gegnum 
þjónustuvef SSÍ.

Starfsmannaskráning

Skráningargjald er 1500 kr fyrir hverja einstaklingsgrein og 2500 kr fyrir hverja boðsundsgrein.
Einnig vekjum við athygli á Keppnispassa SSÍ skv verðskrá SSÍ sem má nálgast hér

Seinskráningargjald bætist við skráningar sem berast eftir að skráningarfrestur er liðinn. Tekið er við seinskráningum fram að upphafi upphitunar í 1. hluta á föstudegi.

 

LOKAHÓF:

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar verður með glæsilegt lokahóf að loknu móti á laugardeginum. 

Í boði verður steikarhlaðborð frá SoHo og möguleiki að kaupa drykki á staðnum.

Staðsetning: 2.hæð í Ljónagryfjunni (Norðurstíg 4, 260 Reykjanesbæ)

Kostnaður: 8.000kr 

Matseðill:

Aðalréttir: 

Grillað lambalæri Béarnaise

Grillaðar nautalundir

Satay kjúklingaréttur með blómkáli

Meðlæti: 

Ferskt garðsalat með dressingum

Sveita kartöflur

Rótar grænmeti

Belgbaunir og maís

Béarnaise / Sveppasósa / Rauðvínssósa

Eftirréttur: 

Brownies / Orio ís / súkkulaði og karamellusósa. 


Skráningarform fyrir lokahóf 

Skráningarfrestur er til 22. apríl 2026

 

Keppendalistar, ráslistar, úrslit ofl.

Hér er hægt að nálgast keppendalista, ráslista, bein úrslit, dagskrá og fleira.

Hægt er að skrá sig beint í skjalið hér að neðan.

IMOC 2019 í Laugardalslaug, Reykjavík:
IMOC 2019 - Heildarúrslit PDF
IMOC 2019 - Heildarúrslit Splash
IMOC 2018 í Ásvallalaug, Hafnarfirði:
IMOC 2018 - Heildarúrslit PDF
 
Úrslit IMOC 2017 í Ásvallalaug, Hafnarfirði:
IMOC 2017 Heildarúrslit.pdf 

Úrslit IMOC 2016 í Ásvallalaug, Hafnarfirði:
IMOC2016_Results_pdf
IMOC2016_full_results_lenex (Splash)
 
Úrslit IMOC 2015 í Vestmannaeyjum:
IMOC_2015_heildarurslit.pdf
IMOC 2015 Splash úrslit 

Úrslit IMOC 2014
Úrslit IMOC 2014 af heimasíðu Breiðabliks

Úrslit IMOC 2013:
Úrslit IMOC 2013.pdf
Hy-tek - úrslit IMOC 2013.zip

1. grein

Mótið heitir Opna Íslandsmeistaramótið í Garpasundi (Icelandic Masters Open Championsip, IMOC) og skal haldið ár hvert í apríl eða maí.

2. grein

Mótið skal vera opið alþjóðlegt sundmót.

3. grein

Mótið skal haldið í 25 m laug. Sækja skal um að halda mótið skv. 3. grein Almennra ákvæða Sundsambands Íslands.

4. grein

Hver keppandi má aðeins keppa einu sinni í hverri grein boðsunds en hvert félag má senda fleiri en eitt lið til keppni.

5. grein

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Fyrri dagur

1. Karla/men A-O 800 m skrið/free
2. Kvenna/women A-O 800 m skrið/free
3. Karla/men A-O 50 m flug/fly
4. Kvenna/women A-O 50 m flug/fly
5. Karla/men A-O 100 m bringa/breast
6. Kvenna/women A-O 100 m bringa/breast
7. Karla/men A-O 50 m skrið/free
8. Kvenna/women A-O 50 m skrið/free
Hlé/Break 10 mín.
9. . Kvenna/women A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m skrið/free
10. Karla/men A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m skrið/free

Seinni dagur

Fyrri hluti

11. Kvenna/women A-O 400 m skrið/free
12. Karla/men A-O 400 m skrið/free
13. Kvenna/women A-O 100 m flug/fly
14. Karla/men A-O 100 m flug/fly
15. Kvenna/women A-O 50 m bringa/breast
16. Karla/men A-O 50 m bringa/breast
17. Kvenna/women A-O 100 m bak/back
18. Karla/men A-O 100 m bak/back
19. Kvenna/women A-O 200 m skrið/free
20. Karla/men A-O 200 m skrið/free
21. Kvenna/women A-O 100 m fjór/medley
22. Karla/men A-O 100 m fjór/medley
Hlé/break 10 mín
23. 2 karlar/men + 2 konur/women A, B, C, D, E, og/and F 4 x 50 m fjór/medley

Seinni hluti

24. Karla/men A-O 200 m fjór/medley
25. Kvenna/women A-O 200 m fjór/medley
26. Karla/men A-O 50 m bak/back
27. Kvenna/women A-O 50 m bak/back
28. Karla/men A-O 200 m bringa/breast
29. Kvenna/women A-O 200 m bringa/breast
30. Karla/men A-O 100 m skrið/free
31. Kvenna/women A-O 100 m skrið/free
Hlé/break 10 mín
32. Kvenna/women A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m fjór/medley
33. Karlar/men A-O A, B, C, D, E og/and F 4 x 50 m fjór/medley

Aldursflokkaskipting / Age group
20 - 24 ára keppa sem gestir og skulu ekki reiknast til stiga.
20-24 25-29 30-34 35-39 40-44
45-49 50-54 55-59 60-64 65-69
70-74 75-79 80-84 85-90 90+

Aldursflokkaskipting í 4x50 m boðsundi / Age groups in 4x50 m medley and free
A = 100 - 119 B = 120 - 159 C = 160 - 199
D = 200 - 239 E = 240 - 279 F = 280 -

6. grein

Fyrir keppni í einstaklingssundum skal veita verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti. Fyrir keppni í
boðsundum skal veita verðlaun fyrir fyrsta sæti. Allir þátttakendur skulu fá viðurkenningarskjöl og skal mótshaldari standa straum af kostnaði vegna verðlauna.

7. grein

Stig skulu veitt fyrir hvert sæti í einstaklingssundi sem hér segir: 9, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1 en helmingi fleiri stig fyrir boðsund. Stigahæsta félagið skal hljóta farandbikar. Til að eignast bikarinn skal vinna hann þrjú ár í röð eða fimm sinnum alls. Ef félögin eru jöfn að stigum skulu boðsundin ráða röð þeirra.

8. grein

Tæknifund eða -fundi skal halda samkvæmt nánari auglýsingu fyrir upphaf móts