Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hert samkomubann og upplýsingar

23.03.2020 11:14

Heilbrigðisráðherra kynnti i gær að á miðnætti 23. mars hefst hert samkomubann.

Það þýðir að allar samkomur eru takmarkaðar við 20 manns hvort heldur er í opinberum rýmum eða einkarýmum og jafnframt er krafa um að tveggja metra fjarlægðarviðmiðinu sé framfylgt. Hreinlæti og sóttvörnum skal fylgt eftir sem áður.

Hér að neðan er tengill á fyrirmælin í heild sinni, vinsamlegast kynnið ykkur þau vel.

Einnig er tengill á leiðbeiningar fyrir áhættuhópa og einstaklinga sem eru í umgengni við þá sem teljast í áhættuhópi.

Bæði skjölin er að finna á www.covid.is á íslensku, ensku og pólsku.

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur það efni sem er að finna á heimasíðu embætti landlæknis (www.landlaeknir.is og www.covid.is )

Samkomubann_hert_21.03.20.pdf

Leiðbeiningar fyrir áhættuhópa.pdf
Til baka