Íslandsmeistaramót í 25 m laug 2019
Íslandsmeistaramótið í 25m laug fer fram í Ásvallalaug, Hafnarfirði dagana 8-10. nóvember 2019 í samstarfi við Íþróttasamband Fatlaðra. Sundfélag Hafnarfjarðar sér um framkvæmd mótsins.
Skráningafrestur rennur út þriðjudaginn 29. október 2019.
Þjálfarar fá senda keppendalista, hver fyrir sitt félag og hafa eftir það 1 sólarhring til að gera leiðréttingar vegna augljósra mistaka í skráningum.
Mótið er keyrt á Splash mótaforritinu og ber félögum að skila skráningum á því formi.
Þjálfarar fá senda keppendalista, hver fyrir sitt félag og hafa eftir það 1 sólarhring til að gera leiðréttingar vegna augljósra mistaka í skráningum.
Mótið er keyrt á Splash mótaforritinu og ber félögum að skila skráningum á því formi.
Þeir sem ekki hafa yfir að ráða mótaforriti skulu skila skráningum á Excel skjali með nöfnum, kennitölum, greinum, tímum og sönnun á tíma eigi síðar en mánudaginn 28. október.
Skráningum skal skilað með rafrænum hætti á skraning@iceswim.is ásamt proof of time.
Dómarar skrá sig með pósti á skraningssimot@gmail.com
Allir aðrir starfsmenn geta skráð sig beint í starfsmannaskjalið hér.
Gert er ráð fyrir að keppni í morgunhlutum hefjist kl. 9:30 alla daga og í úrslitum kl. 16:30.
Nánari upplýsingar munu birtast hér á síðunni þegar nær dregur.
Tímaáætlun gæti breyst.
Bein úrslit / Live timing ÍM-25 2019
Ráslistar eru ekki staðfestir fyrr en 2 tímum fyrir hvern hluta
Bein útsending (2 - 6. hluti)
Drög að tímaáætlun
Morgunhlutar:
Upphitun kl. 8:00
Keppni hefst: kl. 09:30
Kvöldhlutar:
Upphitun kl. 15:00
Keppni hefst kl. 16:30
Þjálfarar athugið: Tæknifundur hefst kl. 8:30 að morgni föstudags 8. nóv í hátíðarsal Ásvallalaugar, 2. hæð.
Starfmenn skulu mæta ekki síðar en 45 mínútum áður en keppni hefst.
Morgunhlutar: Starfsmenn mæta 8:45
Kvöldhlutar: Starfsmenn mæta 15:45
Dómarar skrá sig til starfa á mótið með því að senda póst á skraningssimot@gmail.com
Almenn ákvæði Sundsambands Íslands í Lögum og Reglugerðum SSÍ:
Lög og reglur SSÍ - Samþykkt á sundþingi 2015