Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tvö Íslandsmet, eitt aldursflokkamet og 8 verðlaun á fyrsta úrslita hluta Smáþjóðaleikana í sundi.

30.05.2023

Tvö Íslandsmet og 8 verðlaun á fyrsta úrslita hluta Smáþjóðaleikana í sundi.

Snæfríður Sól hóf hlutann á því að bæta Íslandsmetið sitt í 100m skriðsundi þegar hún synti á tímanum 55.06, gamla metið var síðan í apríl, 55,18.  Hún synti svo fyrsta sprett í 4x 100m skriðsundi kvenna og bætti þar aftur tíma sinn og fór undir 55 sekúndu múrinn og synti á 54,97.

Snæfríður tryggði sér silfurverðlaun í 100m skriðsundi en boðsundssveitin tryggði sér sigur í 4x100m skriðsundi. Frábær árangur hjá Snæfríði Sól og þeim Jóhönnu Elínu, Völu Dís og Kristínu Helgu.

Þau Eva Margrét Falsdóttir og Birnir Freyr Hálfdánarsson sigruði bæði í 200m fjórsundi í dag.  Eva Margrét bætti tíma sinn, 2:21,74 og Birnir synti á 2:07,08. Virkilega góður árangur hjá þeim. Veigar Hrafn Sigþórsson synti einnig 200m fjórsund og bætti tíma sinn í greininni, synti á tímanum 2:10,61.

Ylfa Lind Kristmansdóttir varð önnur í 200m baksundi og bætti tíma sinn um rúmar 3 sekúndur, synti á 2:20,16, mjög fínn árangur hjá henni.

Kristín Helga Hákonardóttir varð í þriðja sæti í 200m flugsundi á tímanum 2:25,72 og Aron Þór Jónsson varð fimmti í 200m flugsundi á tímanum 2:12,55

Freyja Birkisdóttir varð í þriðja sæti í 800m skriðsundi á timanum 9;17.16, Katja Lija varð í fjórða sæti í sömu grein og bætti tíma sinn og synti á 9;19,35.

Hólmar Grétarsson bætti sig um 10 sekúndur í 80m skriðsundi og setti um leið aldursflokkamet í greininni 8;35,15, virkilega flottur árangur. 

Þeir Bergur Fáfnir og Guðmundur Leó syntu 200m baksund. Guðmundur varð fjórði á 2:09,18 og Bergur varð fimmti á 2:10,06 og bætti tíma sinn.

Símon Elías varð sjötti í 100m skriðsundi á tímanum 51,67 og bætti tímann sinn í greininni.

Karlasveitin í 4x100m skriðsundi karla tryggði sér silfurverðlaun í greininni þegar þeir syntu á 3;30,96. Sveitin var skipuð þeim Símon Elíasi, Guðmundi Leo, Ými Sölvasyni og Birni Frey

 

Það var frábær stemmning í sundhópnum í dag og sundfólkið tók vel undir þegar þjóðsöngur Íslands var spilaður þrisvar í röð í kvöld. Virkilega flottur árangur hjá okkar fólki í dag.

Mótið heldur áfram í fyrramálið kl 10:00, eða kl 08:00 á ísl tíma.

 

Hér er lifandi streymi: https://tvmi.mt/live/4

 

Hér er hægt að fylgjast með úrslitum:

https://live.swimrankings.net/38302/?fbclid=IwAR3PAJCJmlssfr22Fe_XHTeYybw8mCeJqijmbmnEx-ocZ_ZT-yjvXMCHZ9U

Heimasíða leikana: https://gssemalta2023.mt/

 

 

Til baka