Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sunddeild Fjölnis leitar að metnaðarfullum þjálfara

22.05.2023

Sunddeild Fjölnis leitar að metnaðarfullum þjálfara. Mikið uppbyggingarstarf er hjá deildinni þar sem megin markmið eru að fjölga iðkendum og bjóða upp á fyrsta flokks æfingaumhverfi fyrir það unga og efnilega sundfólk sem æfir hjá sunddeild Fjölnis.

Um er að ræða 30-50% starf, með  möguleika á hærra starfshlutfalli.

Starfslýsing þjálfara

Helstu verkefni þjálfara eru að:

• þjálfa hópa á aldursbilinu 7-13 ára

• aðstoða yfirþjálfara í þeim verkefnum sem hann setur fyrir, leysa af í sundskóla og vera á  sundmótum sé þess óskað

• taka virkan þátt í uppbyggingu deildarinnar, afla sér faglegrar þekkingar og styðja sundfólkið í að ná framförum í sinni íþrótt

Hæfniskröfur:

• góður íþróttabakgrunnur

• góðir samskipta- og skipulagshæfileikar

• metnaður og frumkvæði

• góð íslenskukunnátta

• hreint sakavottorð

• lágmarksaldur 20 ára

 

Sunddeild Fjölnis leggur mikinn metnað í endurmenntun þjálfara. Því er í boði að sækja

þjálfaranámskeið hjá Sundsambandi Íslands. Öll reynsla eða menntun í sundþjálfun er mikill  kostur en ekki krafa.

Nánari upplýsingar veitir stjórn deildarinnar á sund@fjolnir.is og formaður deildarinnar Aníka Lind Björnsdóttir s. 867-4371.

Til baka