Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fyrsta undanrása hluta á ÍM50 er lokið.

01.04.2023

 

Fínn árangur náðist í morgun. Fimm sundmenn tryggðu sér lágmark á Evrópumeistaramót unglinga sem fram fer í sumar.

Birnir Freyr úr SH tryggði sér lágmark í 100m flugsundi á tímanum 55,83. Guðmundur Leó bætti tíma sinn í 200m baksundi um tvær sekúndur, 2:06,61 og synti einnig undir lágmarki á EMU. 

Þeir Einar Margeir, ÍA og Snorri Dagur, SH syntu báðir undir EMU lágmarki í 100m bringusundi. Einar synti á 1:03,77 og Snorri á 1:04,18. Vala Dís úr SH synti 50m skriðsund á sínum besta tíma, 26,77 tryggði sér einnig lágmark á EMU.

Það lítur út fyrir virkilega spennandi úrslita hluta í dag, en hann hefst kl 17:00 í Laugardalslaug.

Til baka