Beint á efnisyfirlit síðunnar

Freyja með bronsverðlaun í dag á NM 2021

03.12.2021

Flott byrjun hjá okkar fólki á Norðulandameistaramótinu í Svíþjóð í dag, en Freyja Birkisdóttir tryggði sér sín fyrstu bronsverðlaun í 400m skriðsundi . Freyja synti á tímanum 4:20.19.

Eva Margrét Falsdóttir synti 200m bringusund á tímanum 2.32. 94 og varð í fjórða sæti en það munaði aðeins 23/100 á fjórða og þriðja sætinu.

Steingerður Hauksdóttir synti einnig í úrslitum í kvöld, hún synti 50m baksund á tímanum 28.60 og varð í fmmta sæti. Hún synti einnig 50m skriðsund á tímanum 26:08 og varð í sjötta sæti.

Daði Björnsson synti 100m bringusund á tímanum 1.02.38 og varð fimmti í sundinu.

Simon Elías Statkevicius synti 50m skriðsund á tímanum 22.94, hann varð í fimmta sæti. 

Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100m flugsund á tímanum 55.86 og varð í sjöunda sæti.

Veigar Hrafn Sigþórsson synti einnig í úrslitum í 400m skriðsundi og varð í áttunda sæti á tímanum 4:02.93

Stúlkurnar enduðu daginn á 4x 200m skriðsundi á tímanum 8:37.93.  Sveitina skipuðu þær Eva Margrét, Katja Lilja, Freyja og Sunneva Bergman.

Fínn árangur hjá okkar fólki í dag, allir syntu á eða alveg við sína bestu tíma.

Mótið heldur áfram í fyrramálið með undanrásum og síðan eru úrslit eftir hádegi.

Hér er hægt að horfa á streymi frá mótinu :

https://livetiming.se/superlive.php?cid=6143&session=2

Hér er hægt að sjá úrslit :

https://livetiming.se/results.php?cid=6143&session=2

Hér er hægt að sjá greinaröð og startlista:

https://livetiming.se/program.php?cid=6143&session=1

 

Myndir með frétt

Til baka