Beint á efnisyfirlit síðunnar

Snæfríður og Steingerður syntu í morgun

04.11.2021

 Snæfríður Sól synti nú í morgun 100m skriðsund á EM25 sem fram fer í Kazan. Hún synti á tímanum 54,99, og synti mjög vel og var alveg við sinn besta tíma, 54.95 og varð í 22. sæti af 43 keppendum. 

Snæfríður nálgast  Íslandsmetið í greininni, en það er 54,44 í eigu Ragnheiðar Ragnarsdóttur. 

Steingerður Hauksdóttir synti einnig í morgun, 50m baksund  á tímanum 28,18  sem er  frábær bæting hjá henni, hennar besti tími var 28,52.

Íslandsmetið í greininni  27,40 en það setti Eygló Ósk Gústafsdóttir árið 2016.

Myndir með frétt

Til baka