Beint á efnisyfirlit síðunnar

Klaus sextugur

02.11.2021

 

 

Klaus Jurgen Ohk framkvæmdastjóri og sundþjálfari hjá SH varð sextugur s.l sunnudag 31. október.  Af því tilefni hélt Sundfélag Hafnarfjarðar óvænta afmælisveislu fyrir hann föstudagskvöldið 29.október, að lokinni æfingu hjá sundfólkinu hans.

Sundfólk, foreldrar, þjálfarar og aðrir velunnunarar söfnuðust saman á sundlaugarbakkann og upp í stúku og sungu afmælissöng fyrir Klaus, en þessi uppákoma kom honum skemmtilega á óvart. 

Heljarinnar veisluborð var útbúið í anddyri Ásvallalaugar af veitingum sem foreldrar sundfólksins hafði útbúið.

Við þetta hátíðlega tilefni veitti Hrafnkell Marinoson formaður ÍBH,  Klaus gullmerki ÍBH sem þakklætisvott og viðurkenningu fyrir frábær störf í þágu SH og hvatti hann til að halda þeim áfram um ókomna tíð. 

Innilega til hamingju með daginn Klaus !

Myndir með frétt

Til baka