Beint á efnisyfirlit síðunnar

Aldursflokkameistarar 2021

29.06.2021Aldursflokkaverðlaun einstaklinga eru veitt þeim keppendum sem ná bestum samanlögðum árangri í sínum stigahæstu greinum í samræmi við stigatöflu FINA. Í flokki sveina og meyja (12 ára og yngri) er reiknaður árangur úr 200 metra fjórsundi, 400 metra skriðsundi og svo stigahæstu grein þar fyrir utan.

Sveinameistari AMÍ 2021 er Árni Þór Pálmason úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar, en hann hlaut 928 stig samtals fyrir 200m fjórsund, 400m og 800m skriðsund.

Meyjameistari AMÍ 2021 er Sólveig Freyja Hákonardóttir úr Sunddeild Breiðabliks, en hún hlaut 1415 stig samtals fyrir 200m fjórsund, 400m og 800m skriðsund.

Í flokki drengja og telpna (13-14 ára) er reiknaður árangur úr þremur stigahæstu greinum einstaklingsins.

Drengjameistari AMÍ 2021 er Björn Yngvi Guðmundsson úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, en hann hlaut 1649 stig samtals fyrir 200m, 400m og 800m skriðsund.

Telpnameistari AMÍ 2021 er Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar, en hún hlaut 1828 stig samtals fyrir 200m, 400m og 800m skriðsund. Sunneva fékk einnig afhentan Ólafsbikarinn en hann er veittur þeim einstaklingi sem bestum árangri nær í 400m fjórsundi, 400m skriðsundi, 800m skriðsundi og/eða 1500m skriðsundi.

Í flokki pilta og stúlkna (15-17 ára) er reiknaður árangur úr tveimur stigahæstu greinum einstaklingsins.

Piltameistari AMÍ 2021 er Daði Björnsson úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, en hann hlaut 1325 stig samtals fyrir 100m bringusund og 100m skriðsund.

Stúlknameistari AMÍ 2021 er Kristín Helga Hákonardóttir úr Breiðablik, en hún hlaut 1401 stig samtals fyrir 100m og 200m skriðsund

Myndir með frétt

Til baka