Beint á efnisyfirlit síðunnar

Æfingafyrirkomulag enn óbreytt

15.05.2020

Sundlaugar landsins verða opnaðar almenningi á miðnætti þann 18. maí nk og má hámarksfjöldi í laugunum þá vera helmingur þess sem var áður en þeim var lokað.

Skipulagðar sundæfingar hófust þó þann 4. maí sl. með auglýstum takmörkunum frá Heilbrigðisráðuneytinu að einungis 7 iðkendur mættu vera á æfingu í einu.

Athygli er vakin á því að þó sundlaugar opnist almenningi haldast þessar takmarkanir enn og gert ráð fyrir að þær standi í viku til viðbótar.

Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

„6.gr.
Skipulagt íþróttastarf. Æfingar og keppnir skipulagðs íþróttastarfs eru heimilar án áhorfenda með þeim takmörkunum sem greinir í 6. gr. Í skipulögðu íþróttastarfi skulu snertingar vera óheimilar og halda skal 2 metra bili á milli einstaklinga. Notkun á sameiginlegum búnaði, einkum þeim sem snertur er með höndum, skal haldið í lágmarki og ber að sótthreinsa hann á milli notkunar. Óheimilt er að nota búningsklefa, sturtuklefa og aðra inniaðstöðu en íþróttasal og salernisaðstöðu. Við skipulagt íþróttastarf innandyra mega ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman í einu rými, sem skal vera a.m.k. 800 m². Við skipulagt íþróttastarf utandyra mega ekki fleiri en sjö einstaklingar æfa eða leika saman í hópi. Séu fleiri hópar við æfingar á sama svæði skal miða við að hver hópur hafi um 2.000 m² til umráða. Þrátt fyrir ákvæði 3.-5. mgr. eru sundæfingar heimilar fyrir allt að sjö manns í einu, hvort sem er inni eða úti, og notkun búnings- og sturtuaðstöðu eftir því sem þörf krefur. “

Til baka