Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dómaranámskeið 11.mars í Ásvallalaug í Hafnarfirði

06.03.2020

Haldið verður sunddómara námskeið 11. mars 2020 í fundarherbergi 2.hæð í Ásvallalaug, Hafnarfirði  kl: 18:00

Námskeiðið er einn bóklegur hluti sem tekur uþb. 2 ½ klst, þar sem farið er yfir sund-reglur og fleira sem við kemur sundmótum og svo þarf að starfa tvo mótshluta í verklegri þjálfun til að verða dómaranemi.

Skráning á námskeiðið er á netfangið domaranefnd@iceswim.is , vinsamlega sendið upplýsingar um nafn, kennitölu, gsm og frá hvaða sundfélagi/deild.

Til baka