Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sjötta Íslandsmet Antons á EM25

06.12.2019

Sundmaðurinn knái Anton Sveinn McKee heldur sínu striki hér á Evrópumeistarmótinu í Glasgow. Hann setti Íslandsmet þegar hann synti 100 metra bringusund í undanrásum á tímanum 57,21 sekúnda sem er 36/100 úr sekúndu betri tími en gamla Íslandmetið (57,57) hans frá því á HM25 í fyrra. Hann varð annar inn í milliriðla sem fram fara í kvöld. 

Samkvæmt FINA er þetta 10. besti tími í greininni á árinu og 9. besti tími í Evrópu.

 

Til baka