Beint á efnisyfirlit síðunnar

Norðurlandamet þegar Anton bætti metið í 50m bringu enn og aftur

04.12.2019

Anton Sveinn Makee gerði sér lítið fyrir og bætti Íslandsmetið sitt í 50 metra bringusundi enn og aftur í úrslitariðlinum sem var að ljúka. Hann endaði 7. í greininni. En með sundinu jafnaði hann jafnframt Norðurlandamet Tobiasar B. Bjerg frá Danmörku sem synti í morgun í undanrásum á sama tíma og Anton Sveinn í úrslitasundinu eða 26,14 sekúndum.  

Anton hóf daginn með því að bæta met sem hann setti HM25 í Hangzhou í fyrra en það var 26,74 sekúndur, en metið í morgun var 26,43. Í milliriðlum í fyrstu grein úrslitahlutans bætti hann Íslandsmetið aftur og synti þá á 26,28. Hann var mjög ánægður eftir það sund, það geislaði af honum öryggið og hann nýtti það svo sannarlega þegar hann synti greinina í þriðja skipti í dag og bætti metið sitt enn og aftur, synti 26,14 sem er eins og áður sagði jöfnun á Norðurlandameti frá því í morgun. 

Fyrir daginn í dag var það Svíinn Johannes Sagius frá Svíþjóð sem átti Norðurlandametið. 

 

Til baka