Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íslandsmet í 4x50m skriðsundi

09.11.2019

Þriðja hluta Íslandsmeistaramótsins í 25m laug lauk nú rétt í þessu en í síðustu greininni, 4x50m skriðsundi í blönduðum flokki, féll 5 ára gamalt Íslandsmet.

A - sveit SH synti á 1:37,53 en gamla metið var 1:38,63. 

Sveit SH skipuðu þau Steingerður Hauksdóttir, Kolbeinn Hrafnkelsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Dadó Fenrir Jasminuson.

Til hamingju SH-ingar. 

Til baka