Beint á efnisyfirlit síðunnar

Stjarnan leitar að sundþjálfara

16.08.2019

 

Við leitum að Sundþjálfara við yngri starf deildarinnar. Frábær aukavinna með skóla eða annari vinnu. Í boði annaðhvort að vinna 2 eða 3 senniparta í viku (2,5 klst í senn). Góð laun fyrir rétta aðilann. Æskilegt er að viðkomandi getur byrjað í september

Starfssvið þjálfara:

  • Þjálfun yngri hópa félagsins undir handleiðslu yfirþjálfara
  • Vera fyrirmynd iðkennda
  • Halda utan um iðkendaskrá og skrá mætingu hjá sínum hópum
  • Vera partur af góðri liðsheild þjálfara

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sundíþróttinni
  • Menntun á sviði íþróttafræða
  • Sérhæfing í sundþjálfun er kostur
  • Viðkomandi verður að geta unnið með unglingum og börnum og verið góð fyrirmynd.
  • Hreint sakavottorð
  • Nauðsynlegt að viðkomandi skilji og tali íslensku

Einnig erum við að bæta við okkur aðstoðarþjálfara

Starfssvið Aðstoðarþjálfara:

  • Aðstoða við þjálfun yngri hópa félagsins undir handleiðslu þjálfara/yfirþjálfara.
  • Vera partur af góðri liðsheild þjálfara.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sundíþróttinni
  • Lágmarksaldur 18 ára
  • Tilbúinn að sækja þjálfaranámskeið sem deildinn tekur kostnað af.
  • Viðkomandi verður að geta unnið með unglingum og börnum og verið góð fyrirmynd.
  • Hreint sakavottorð
  • Nauðsynlegt að viðkomandi skilji og tali íslensku

Sunddeild Stjörnunnar er eitt af fyrirmyndarfélögum ÍSÍ. Þjálfun fer fram á fjórum laugum í Garðabæ (Mýrin, Sjáland, Álftanesi og Ásgarði).

Nánari upplýsingar veitir Friðbjörn yfirþjálfari, sund@stjarnan.is eða í síma 661-3210 (eftir kl.17). Umsókn og ferilskrá skal skila á sund@stjarnan.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál

Til baka