Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anton með nýtt Íslandsmet í 50m bringu

23.07.2019

Það fór eins og Anton Sveinn hafði sjálfur spáð, hann hefur hraðann fyrir 50 metrana og bætti Íslandsmetið í greininni í morgun hér á HM50 í Gwangju um 20/100 úr sekúndu. Frábær árangur og nýja Íslandsmetið er 0:27,46.  Hann endaði í 20.sæti með þennan tíma en til að ná inn í milliriðla hefði Anton þurft að synda á 0:27,33 eða á 13/100 úr sekúndu betri tíma.

Sundið hans Antons Sveins hér í morgun var taktfast og hann náði að nýta sundtökin vel. Hann fer nú að undirbúa sig fyrir 200 metra bringusundið á fimmtudag og segir að það sé jákvætt að finna hraðan og kraftinn sem hann hefur. Nú sé að nýta það sem best fyrir 200 metrana.

Myndir með frétt

Til baka