Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kristinn í 100 metra baksundi

22.07.2019

Kristinn Þórarinsson synti 100 metra baksund á HM50 í Gwangju í morgun. Hann náði í annan besta tímann sinn í sundinu eða 56,99 sem er 36/100 frá hans besta í greininni frá því á IM50 í apríl sl. Kristinn byrjaði sundið hratt náði ágætum millitíma (27,16) en þreytan fór að segja til sín í síðari hluta sundsins. Kristinn endaði í 46. sæti í greininni.

Íslandsmet Arnar Arnarsonar frá því á HM50 í Fukuoka 2001 er 54,75.

Til baka