Beint á efnisyfirlit síðunnar

Næm hluti tvö

13.07.2019

Annar hluti á NÆM gekk vel hjá okkar fólki.

 

Eva Margrét úr ÍRB synti 400m fjórsund og varð í fjórða sæti aðeins frá sínum besta tíma, hún synti á 5.16.38. Veigar Hrafn úr SH synti einnig 400m fjórsund og bætti sig um 1.sekúndu og synti á 5.01.57.  Aron Fannar bætti sig um 10 sekúndur í 400m fjórsundi í dag en hann synti á 4.52.49 og varð fjórði í sundinu.

Ólöf Kristín synti 200m skriðsund og bætti sig þar um 1 sekúndu, hún synti á tímanaum 2.15.53.

Piltarnir syntu aftur boðsund í dag, þegar þeir tóku þátt í 4x100m skriðsundi og syntu þeir allir við sína bestu tíma í því sundi.

 

þá er einn hluti eftir á mótinu en mótinu líkur um hádegi á morgun sunnudag.

 

3 hluti hefst kl 10.00 í fyrramálið eða kl 8.00 á íslenskum tíma.

http://www.livetiming.dk/results.php?cid=4613&session=3

Til baka