Beint á efnisyfirlit síðunnar

Aldursflokkameistarar 2019

23.06.2019

Aldursflokkaverðlaun einstaklinga eru veitt þeim keppendum sem ná bestum samanlögðum árangri í sínum stigahæstu greinum í samræmi við stigatöflu FINA. Í flokki sveina og meyja (12 ára og yngri) er reiknaður árangur úr 200 metra fjórsundi, 400 metra skriðsundi og svo stigahæstu grein þar fyrir utan.

Sveinameistari AMÍ 2019 er Björn Yngvi Guðmundsson úr SH, en hann hlaut 1013 stig samtals fyrir 200m fjórsund, 400m og 800m skriðsund.

Meyjameistari AMÍ 2019 er Helga Sigurlaug Helgadóttir úr SH, en hún hlaut 1414 stig samtals fyrir 200m fjórsund, 400m og 800m skriðsund.

Í flokki drengja og telpna (13-14 ára) er reiknaður árangur úr þremur stigahæstu greinum einstaklingsins. 

Drengjameistari AMÍ 2019 er Birnir Freyr Hálfdánarson úr SH, en hann hlaut 1713 stig samtals fyrir 400m fjórsund, 200m skriðsund og 800m skriðsund.

Telpnameistari AMÍ 2019 er Freyja Birkisdóttir úr Breiðablik, en hún hlaut 1865 stig samtals fyrir 200m skriðsund, 400m skriðsund og 800m skriðsund. Freyja hlaut einnig Ólafsbikarinn en hann er veittur þeim einstaklingi sem bestum árangri nær í 400m fjórsundi, 400m skriðsundi, 800m skriðsundi og/eða 1500m skriðsundi.

Í flokki pilta og stúlkna (15-17 ára) er reiknaður árangur úr tveimur stigahæstu greinum einstaklingsins. 

Piltameistari AMÍ 2019 er Patrik Viggó Vilbergsson úr Breiðablik, en hann hlaut 1390 stig samtals fyrir 400m og 800m skriðsund.

Stúlknameistari AMÍ 2019 er Kristín Helga Hákonardóttir úr Breiðablik, en hún hlaut 1350 stig samtals fyrir 400m og 800m skriðsund. 

Golli tók þessar flottu myndir af efnilegasta sundfólkinu okkar.

Myndir með frétt

Til baka