Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sundþing SSÍ 2019 verður haldið í Reykjavík 15.júní n.k

03.05.2019

Sundþing verður haldið í Reykjavík þann 15.júní 2019. Nánari staðsetning verður gefin út síðar.

Fulltrúar á sundþingi

Á sundþingi eiga fulltrúar sæti í samræmi við lög SSÍ:
1) Einn fulltrúi héraðssambands eða íþróttabandalags (1 frá hverju)

2) Fulltrúar félaga í samræmi við iðkendafjölda (2 fulltrúar fyrir fyrstu 30 iðkendur félags og 1 fyrir hverja 30 eða brot úr þeirri tölu eftir það)

3) Fulltrúar félaga vegna keppenda (1 fulltrúi fyrir hverja 50 keppendur félags eða brot úr þeirri tölu)


Framkvæmdastjóri sendir félögum og héraðssamböndum/íþróttabandalögum tilkynningu um fjölda hvers aðila fyrir sig og óskar eftir nafnalista frá þessum aðilum ekki síðar en tveimur vikum fyrir sundþing.

Félag þarf að hafa gert upp þjónustugjöld fyrir árið 2018 til að öðlast þátttökurétt á Sundþing.

 

  Áætluð dagskrá Sundþings í samræmi við lög SSÍ :

Kl. 08:00 til 09:00 húsið opnar – skráning og morgunverður

Kl. 09:00 til 10:30

1. Þingsetning – ávörp gesta

2. Kjör kjörbréfanefndar

3. Kjörnir þingforseti/ar og þingritari/ar

4. Tillaga um heiðursviðurkenningar SSÍ afgreidd

5. Niðurstaða kjörbréfanefndar kynnt

6. Kosning starfsnefnda þingsins

a) Fjárhagsnefnd

b) Laga- og leikreglnanefnd

c) Allsherjarnefnd

d) Aðrar nefndir, ef þörf krefur

7. Skýrsla stjórnar

8. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram

9. Umræður um skýrslu stjórnar, starfsnefnda og reikninga

10. Afgreiðsla reikninga

11. Tillögur sem lagðar eru fyrir þingið samkvæmt fundarboði - kynntar og vísað til nefnda

12. Tillaga stjórnar um fjárhæð og fyrirkomulag þjónustugjalda

 

              kl. 10:30 – 12:30

13. Nefndastörf             

               kl. 12:30 – 13:30 Hádegisverður

 

               kl. 13:00 – 14:00

    13. Lokafrágangur í nefndum

kl. 14:00 – 16:00

14. Fjárhagsáætlun – afgreiðsla

15. Afgreiðsla lagabreytingatillagna

16. Afgreiðsla annarra tillagna frá starfsnefndum

            

               kl. 16:00 – 16:30

17. Kosningar

a) Kosning formanns til tveggja ára

b) Kosning fjögurra stjórnarmanna á sundþingum sem haldin eru á oddatöluári til fjögurra ára

c) Kosning tveggja varamanna til næsta sundþings

d) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga til næsta sundþings

               

kl. 16:30 – 17:30

Afgreiðslu tillagna úr nefndum haldið áfram ef þörf krefur

18. Önnur mál

Heiðursviðurkenningar afhentar

19. Þingslit kl. 17:30

 

kl.18:00 – 20:00 Hátíðarkvöldverður í boði SSÍ

Til baka