Beint á efnisyfirlit síðunnar

Boðsundskeppni Grunnskóla á morgun þriðjudag.

25.03.2019

Nú er tæpur sólahringur í gleðina í Laugardalslaug!

 

Boðsundskeppni Grunnskóla er á morgun þriðjudag í Laugardalslaug J 

Það hafa 42 skólar tilkynnt þátttöku sem eru 7 fleiri skólar en í fyrra sem er glæsilegur árangur, nokkrir skólar senda fleiri en eitt lið og eru keppendur orðnir 640 J J

 

Upphitun hefst kl 9:30, krakkarnir geta synt aðeins, æft sig að stinga sér osfrv.  

 

Við hefjum mótið kl 10:00, við reiknum með að það standa ekki lengur en til kl 12:00, vorum búin um 11:30 í fyrra.

 

Dagskráin er sem hér segir:

 

  • 5.- 7 bekkur byrjar keppnina og munum við synda á 10 brautum fyrst til að byrja með.
  • Síðan keppir 8. – 10 bekkur
  • 9 hröðustu tímarnir úr 5. – 7 bekk keppa
  • 9 hröðustu tímarnir úr 8.- 10 bekk keppa
  • 6 hröðustu tímarnir úr 5. – 7 bekk keppa
  • 6 hröðustu tímarnir úr 8. – 10 bekk keppa
  • 3 hröðustu tímarnir úr 5. – 7 bekk keppa
  • 3 hröðustu tímarnir úr 8. – 10 bekk keppa

Að lokinni keppni verður verðlaunaafhending. 

Veitt eru þrenn verðlaun í hvorum aldursflokki ( 1. – 3. sæti) í lokakeppninni.

Sá skóli sem sigrar fær sæmdarheitið „Grunnskólameistari í sundi“.

 

 

Við munum einnig kynna fyrir ykkur sundknattleik, það er leikur sem flestir geta haft gaman af.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur hress og kát á morgun.

Til baka