Beint á efnisyfirlit síðunnar

Snæfríður Sól nálægt íslandsmeti

06.11.2018

Snæfríður Sól Jórunnardóttir var fjórum hundraðshlutum úr sekúndu frá því að bæta tíu ára gamalt Íslandsmet um helgina.


Snæfríður Sól keppti á danska meistaramótinu í sundi um helgina. Þar synti hún 200 metra skriðsund í 25 metra laug á 1:59,49 mín.

Íslandsmetið í greininni er 1:59:45 en það var sett á EM25 árið 2008 og er í eigu Sigrúnar Brá Sverrisdóttur.

Snæfríður Sól setti í sumar Íslandsmet í sömu vegalengd í 50 metra laug þegar hún synti á 2:01,82 mínútum.
Til baka