Beint á efnisyfirlit síðunnar

Mumma Lóa og Björg í 50m skriðsundi

04.09.2018

Þær Guðmunda Ólöf Jónasdóttir og Björg Hólmfríður Kristófersdóttir syntu báðar 50 metra skriðsund saman í riðli  í dag hér í Slóveníu, Mumma Lóa á braut 2 á tímanum 0:45,25 og Björg á braut 7 á tímanum 0:43,98.

Garpametið í 50 metra skriðsundi í þeirra aldursflokki, 65-69 ára á Mumma Lóa frá því á HM garpa í Búdapest í fyrra, en það er 0:42,40. 

Myndin er af þeim stöllum eftir sundið í dag.

 

Til baka